Fréttir

Fiskeldi í Berufirði

28.2.2006 : Kynbætur fyrir þorskeldi – myndun á IceCod-grunnstofni.

AVS sjóðurinn hef styrkt verkefni á sviði kynbóta fyrir þorskeldi frá því sjóðurinn tók til starfa árið 2003. Kynbætur er mjög tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni sem krefst mikils samstarfs fyritækja og ýmissa sérfræðinga. Á árinu 2003 var stofnað félag, Icecod á Íslandi ehf., um seiðaeldi og kynbætur fyrir þorskeldi.

Lesa nánar
 
Sandhverfu seiði

23.2.2006 : Við hvaða aðstæður vex sandhverfan best?

Á síðastliðnu ári styrkti AVS sjóðurinn verkefni þar sem leitast er við að skilgreina kjöreldisaðstæður sandhverfu og þróa nýjar framleiðsluaðferðir við eldið. Verkefnið er í unnið í samstarfi Akvaplan-niva á Íslandi, Silfurstjörnunnar í Öxafirði og tekur Háskólinn í Björgvin í Noregi þátt í ákveðnum verkþáttum.

Lesa nánar

 
Thorskur

22.2.2006 : Úthlutun aflaheimilda til tilrauna í áframeldi á þorski.

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðs varðandi úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Lesa nánar
 
Helen Lauzon

20.2.2006 : Forvarnir í fiskeldi - Ný skýrsla

Nýlega kom út skýrslan Forvarnir í fiskeldi, sem er framvinduskýrsla í samnefndu verkefni er hófst árið 2004 og lýkur árið 2007. Í verkefninu er m.a. rannsakað hvernig þróa megi aðferðir til að greina og bæta umhverfisþætti í lúðu- og þorskeldi á frumstigi eldisins, þ.e. frá klaki til lirfuskeiðs, en á því tímabili eru afföllin í eldinu hvað mest. Lesa nánar
 
Birna Guðbjörnsdóttir

16.2.2006 : Minni sápa - meiri virkni?

Framleiðsla á öruggum, heilnæmum matvælum krefst þess að þau séu framleidd úr góðu hráefni, en ekki síður að fyllsta hreinlætis sé gætt við framleiðslu þeirra. Þrif í matvælaiðnaði eru hins vegar dýr og því mikilvægt að þau gegni sínu hlutverki, án þess að kosta fyrirtækin og umhverfið of mikið. Lesa nánar
 

10.2.2006 : Rúmlega 100 umsóknir bárust

Á miðnætti þess 1. febrúar sl. höfðu borist rúmlega 100 umsóknir til AVS sjóðsins, og greinilegt að mikill hugur er í þeim sem vinna að rannsóknaverkefnum og nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi.

Lesa nánar

 

 
header14


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.