Líftækni - staða og tækifræri
Telja má líklegt að Ísland búi yfir ýmsum auðlindum og eiginleikum sem geti orðið grundvöllur að framtíðarþróun í líftækni. AVS sjóðurinn styrkti verkefni til að meta stöðu og tækifræi íslenskra líftæknifyrirtækja.
Þróun á hrognasmyrju
Fyrir nokkru lauk verkefni í að þróa hrognasmyrju úr ferskum íslenskum loðnu og/eða þorskhrognum. Verkefnið var styrkt af AVS sjóðnum. Hrognasmyrja er þekkt afurð víða um heim en sérstaklega þó í Austur Evrópu og Rússlandi.
Nýtt tæki til þrifa
Þvottatækni ehf á Seyðisfirði hefur á undanförnum árum verið að þróa tæki til þrifa á tönkum og lestum skipa. Á síðastliðnu ári fengu þeir styrk frá AVS sjóðnum til að þróa tækið áfram og koma því fyrir í lest Hoffellsins frá Fáskrúðsfirði.
Meiri verðmæti úr kolmunna
Kolmunni hefur verið veiddur við Ísland í 30 ár með hléum og hægt er að tala um tvö megin veiðitímabil en það eru árin 1976-1983 og síðar tímabilið sem hófst 1996 og stendur enn. Að langmestu leyti hefur kolminnin farið í bræðslu en með þessu verkefni styrktu af AVS var markmiðið að koma ferskara hráefni til lands, svo framleiða mætti verðmætari afurðir til manneldis.
Skoðanakönnun AVS
Á síðustu vikum ársins 2006 og þeirri fyrstu á nýju ári var framkvæmd skoðanakönnun meðal viðskiptavina AVS sjóðsins. Það er ekki hægt að segja annað en að niðurstaða könunarinnar sé mjög jákvæð fyrir sjóðinn.
Aldrei fleiri umsóknir
Það er ekki hægt að segja annað en að vinsældir AVS sjóðsins hafi aldrei verið meiri og hafa sjóðnum borist vel yfir 100 umsóknir nú þegar, en frestur til að sækja um stærri rannsókna- og þróunarverkefni rann út 1. febrúar sl.
AVS til framtíðar
Síðastliðinn föstudag 26. janúar var haldinn opinn fundur um AVS sjóðinn og framtíð hans. Fundarmenn fengu tækifæri til að ræða saman um hvernig sjóðurinn getur best mætt ætlunarverki sínu, þ.e. að auka verðmæti sjávarfangs. Sjávarútvegsráðherra lagði áherslu á í erindi sínu að starfsemi sjóðsins verði tryggð til lengri tíma.

