Fullnýting hráefnis
Það hefur öllum verið ljóst að töluvert af hráefni tapast frá fiskvinnslunum út í umhverfið með vatninu sem notað er á vinnsluvélarnir. Þarna geta verið töluverð verðmæti á ferð og einnig er það afar neikvætt að henda þessu próteini út í umhverfið.
Úthlutun 2008 liggur fyrir
Nú liggur fyrir úthlutun AVS rannsóknasjóðsins fyrir árið 2008, ákveðið hefur verið að styrkja 64 verkefni að þessu sinni með samtals um 320 m.kr. Sjóðurinn hefur aldrei verið eins öflugur, en ráðstöfunarféð var 100 m.kr meira nú en á síðasta ári eða samtals rúmar 350 m.kr.
Kælibót - Samanburður ísmiðla - kælihraði og kæligeta
Það er ekki nýr sannleikur að hröð og örugg kæling sjávarafla viðheldur betur gæðum, lengir geymsluþol og eykur þar með verðmæti sjávarafurða. Kælibót – samþætting kælirannsókna er verkefni sem AVS sjóðurinn hefur styrkt undanfarið.
Pensím virkar á inflúensuveirur
Rannsóknir benda til þess að Pensímlausnir drepi inflúensuveirur af stofni H3N2. Þetta eru mjög hvetjandi niðurstöður, sem gefa tilefni til frekari rannsókna.

