Aukin fiskneysla fćst međ aukinni frćđslu
Ljóst er ađ foreldrar hafa mest hvetjandi og mótandi áhrif á fiskneyslu ungs fólks og ţeir sem hafa vanist ţví ađ borđa fisk í ćsku halda ţví áfram síđar á ćvinni. Í ljós kom ađ frćđsla og ţekking jók greinilega fiskneyslu hjá ungu fólki.
Marningskerfi
3X Technology á ísafirđi hefur á ţessu ári fengiđ styrk frá AVS sjóđnum til ađ ţróa nýjan búnađ til ađ vinna marning úr aukaafurđum. Megin áherslan er lögđ á ađ ná fiskholdi af hryggjum án ţess ađ marningurinn mengist blóđi.
Ensím vinnur verkiđ
Notkun ensíms sparar mikinn tíma viđ hreinsun á lifur fyrir niđursuđu, en ensímiđ leysir upp himnuna á yfirborđi lifrarinnar og viđ ţađ losna ormar sem búiđ hafa um sig undir henni. Fram til ţessa hefur ţurft ađ handvinna ţessa snyrtingu, sem er mjög tímafrek.
Vinnsluferill um borđ í línuveiđiskipum
Umtalsverđar rannsóknir hafa veriđ gerđar undanfarin ár og áratugi á vinnsluferlum og međhöndlun afla um borđ í togskipum. Međ aukinni áherslu á línuveiđar er ţörf fyrir auknar rannsóknir á vinnsluferli línuskipa, ţví inntaka aflans í skipin er mismunandi fyrir ţessi tvö útgerđarform.
Fiskvali
Stjörnu-Oddi vinnur ađ ţróun fiskvala, flokkunarbúnađar sem velur sjálfvirkt fisk inn og út úr trolli. Sjómenn forrita búnađinn og velja međ ţví tegundir og stćrđir inn í trolliđ, öllum öđrum fisk verđur sleppt út úr trollinu.

