Fréttir

Eldiskví

31.3.2009 : Úthlutun áframeldiskvóta 2009

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðs varðandi úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Lesa nánar
 
Sjávarútvegssýningin í Boston

26.3.2009 : Rífandi gangur í markaðssetningu á bleikju

Síðastliðin tvö ár hefur Oddeyri ehf. ásamt samstarfsaðilum sínum, Íslandsbleikju ehf., Samherja hf. og Aquanor Marketing unnið að því að kynna ferska íslenska bleikju á bandarískum smásölumarkaði með góðum árangri. Lagt var af stað með þau markmið að auka söluna um 200% á árinu 2007 og svo um 30% á árinu 2008 og hefur það gengið eftir. Þrátt fyrir þessa miklu söluaukningu hefur tekist að halda afurðaverði háu. Stefnt er á 20% söluaukningu á þessu ári.

Lesa nánar

 
Kúfskel við Suðurland

24.3.2009 : Kúfskel við suðurströnd Íslands

Komið hefur í ljós að kúfskel finnst í veiðanlegu magni við suðurströnd landsins, en þéttleikinn er lítill og samsetning stofnsins er ekki samkvæmt þeim óskum sem markaðurinn kallar eftir í dag.

Lesa nánar

 
Lúðuseiði

9.3.2009 : Spennandi niðurstöður í lúðueldi

Áhrif seltu á vöxt, fóðurnýtingu og blóðlífeðlisfræði var kannað hjá lúðu og sýna niðurstöður að vöxtur og fóðurnýting er 20% hærri hjá lúðu aldri á lágri seltu (hér 15 prómill) og að þessi áhrif séu óháð stærð fisksins. Í heildina benda niðurstöðurnar til þess að vöxt, fóðurnýtni og fjárhag eldisins megi stórbæta með því að ala lúðu við u.þ.b. 15 prómill seltu.

Lesa nánar

 
Ferskur fiskur

4.3.2009 : Kæling fyrir pökkun ferskra flaka

Hjá Matís er unnið að athugunum á áhrifum þess að forkæla afurðir fyrir pökkun með tilliti til geymsluþols afurða. Eftir því sem afurðir eru nær ákjósanlegu hitastigi við pökkun, því minni er kæliþörfin í sjálfu flutningaferlinu.

Lesa nánar

 

 
header8


Útlit síðu:

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.